Tap á rekstri Félagsheimilisins

Tap varð á rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi ehf. á árinu 2012. Nam tapið um 2,7 milljónum króna. Bókfært eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 39,6 milljónir króna samkvæmt efnahagsreikningi. Hlutafé félagsins nam í árslok 40,6 milljónum króna og átti Blönduósbær 99,7% af heildarhlutafé en Leikfélag Blönduóss 0,3% sem er óbreytt frá fyrra ári.

Árið 2012 voru 50 ár liðin frá því að Félagsheimilið á Blönduósi var tekið í notkun. Áður höfðu samkomur verið á ýmsum stöðum á Blönduósi og þá aðallega í Samkomuhúsinu við Aðalgötuna og Hótel Blönduós. Í húsinu er rúmgott anddyri með fatahengi og snyrtingum. Dans- og veislusalur er inn af anddyrinu og bakatil er eldhús og geymslur. Í húsinu er einnig leikhús- og bíósýningaraðstaða og tekur salurinn tæplega 300 í sæti.

Dans- og veislusalurinn tekur á þriðja hundrað mann í sæti. Á annarri hæð er rekin Félagsmiðstöðin Skjólið sem er í umsjón Blönduskóla en Leikfélag Blönduós auk Kvenfélagsins Vöku eru með aðstöðu í kjallaranum. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir