Tap á rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi

Tap varð á rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi á árinu 2011 að fjárhæð 2.727 þús. kr. Þetta kom fram á 57. fundi bæjarráðs Blönduósbæjar þann 5. júlí sl.

Í fundargerð segir að bókfært eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 36.901  þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

„Hlutafé félagsins nam í árslok 40.600 þús. kr. og átti Blönduósbær 99,7% af heildarhlutafé en Leikfélag Blönduóss 0,3% sem er óbreytt frá fyrra ári,“ segir í fundargerð.

Bæjarráð Blönduósbæjar staðfesti ársreikning félagsins fyrir árið 2011 að lokinni umræðu urðu um ársreikninginn.

Fleiri fréttir