Tap hjá Vinstri grænum

Vinstri Græn hafa skilað ársreikningi fyrir árið 2017 til Ríkisendurskoðunar en þar kemur fram að tap af rekstri flokksins nam 13,7 milljónum króna og var eigið fé neikvætt um 17,9 milljónir samkvæmt efnahagsreikningi.

„2017 var kosið til Alþingis, annað árið í röð og var kostnaður vegna Alþingiskosninganna 34 milljónir króna. Framlög ríkisins til hreyfingarinnar voru 46.5 milljónir. Einstaklingar styrktu flokksstarfið um 11,5 milljónir króna, en fyrirtæki styrktu hreyfinguna um 5.4 milljónir,“ segir í tilkynningu frá flokknum.

Stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í rekstri hreyfingarinnar voru laun og tengd gjöld, nærri 38 milljónir króna. Samstæðureikningur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur að geyma ársreikninga flokksins, auk kjördæmisráða, þingflokks og aðildarfélaga yfir viðmiðunarmörkum laga um fjármál stjórnmálasamtaka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir