Team Rynkeby á ferð um Skagafjörð í dag

Hópurinn heimsótti Bessastaði á dögunum og er hér ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Aðsend mynd.
Hópurinn heimsótti Bessastaði á dögunum og er hér ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Aðsend mynd.

Team Rynkeby á Íslandi mun hjóla 850 km í kringum landið á tímabilinu 4.-11.júlí til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, SKB. Hópurinn mun hjóla fal­leg­ar hjóla­leiðir í öllum landshlutum. Team Rynkeby er stærsta evrópska góðgerðarverkefnið þar sem þátttakendur hjóla á hverju ári 1200 km leið frá Danmörku til Parísar til styrktar langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Vegna Covid faraldursins hefur keppninni í ár verið frestað og ákveðið hefur verið að hjóla þess í stað innanlands.  

Hópurinn verður á ferð í Skagafirði í dag en hjólaður verður hringur um fjörðinn. Sjá dagskrá hér að neðan.

Team Rynkeby Ísland var stofnað árið 2017 á Íslandi með það að markmiði að hjóla í söfnunarátaki Team Rynkby til styrktar SKB. Á síðastliðnu ári safnaði Team Rynkeby á Íslandi 23,6 milljónir ISK fyrir SKB. Alls söfnuðu öll Team Rynkeby liðin um 1.472,8 milljónir ISK í fyrra.   Frá því árinu 2002 hafa þátttakendur Team Rynkeby safnað yfir 7 milljörðum króna fyrir langveik börn. 

Hægt er að heita á Team Rynkeby með því að hringja í eftirfarandi styrktarnúmer: 907-1601 -  kr 1.500,- 907-1602 - kr 3.000,- 907-1603 - kr 5.000,-

Íslandsferð Team Rynkeby 4. – 11. júlí 2020:

Dagur 1, laugardagur 4. júlí.  Hjólaðir km: 115, hm 1.222 

Lagt af stað frá Barnaspítala Hringsins eðan nánar frá bílaplani Kennarahússins Laufásvegi 81. Dagskrá hefst kl: 10:00 liðið hjólar af stað kl: 10:15. SKB verður með pylsuvagn á staðnum.

Leið í lögreglufylgd 30 km: Barónsstígur – Eiríksgata – Snorrabraut -Bústaðarvegur – Miklabraut – Vesturlandvegur – Þjóðvegur 1 að Tíðarskarði. Hvalfjörðurinn hjólaður. Lögreglufylgd frá Vegamótum við Laxárbakka þjóðvegur 1 að Hótel B59 Borgarbraut 59 Borgarnesi. 22km.

Dagur 2, Sunnudagur 5. júlí.Hjólaðir km: 100, hm: 1.000
Lagt af stað keyrandi kl. 8:00 frá Borgarnesi og keyrt á Sauðárkrók, um 218 km. Hjólaður hringur frá Sauðárkróki – Varmahlíð- Hólar - Sauðárkrókur.

Dagur 3, mánudagur 6. júlí. Hjólaðir km: 120
Lagt af stað frá Sauðárkróki kl: 8:00. Keyrt 90 km gegnum Hofsós að Strákagöngum að norðanverðu.Hjólað gegnum Strákagöng til Sigurfjarðar. Haldið áfram gegnum Héðinsfjarðargöng, Ólafsfjörð, Dalvík og til Akureyrar. Hjólað síðan áfram til Grenivíkur. Hjólin sett á kerrur og keyrt til Hótel Laxá á Mývatni 88 km.

Dagur 4, þriðjudagur 7. júlí. Hjólaðir km: 134 hm: 1725
Lagt af stað hjólandi frá Hótel Laxá á Mývatni kl: 8:00. Hjólaður Kísilvegurinn til Húsavíkur. Til baka framhjá Hafralækjarskóla, Laugum og til Mývatns aftur.

Dagur 5, miðvikudagur 8. júlí. Hjólaðir km: 106 hm: 880
Lagt af stað keyrandi frá Mývatni og keyrt að Ásbyrgi um 125 km. Hjólað frá Ásbyrgi út á Kópasker og til Þórshafnar á Langanesi. Keyrt síðan til Breiðdalsvíkur um 244 km.

Dagur 6, fimmtudagur 9. júlí. Hjólaðir km: 98
Lagt af stað keyrandi kl: 8:00 og keyrt til Neskaupsstaðar 98 km. Hjólað til baka til Breiðdalsvíkur. Neskaupsstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður. Einnig í gegnum Norðfjarðargöng og Fáskrúðsfjarðargöng.

Dagur 7, föstudagur 10. júlí. Hjólaðir km: 60 hm: 732
Hjólað af stað frá Breiðdalsvík kl: 8:00 til Djúpavogs. Keyrt síðan til Víkur í Mýrdal 365 km stoppum og tökum myndir af liðinu á áhugaverðum stöðum á leiðinni.

Dagur 8, laugardagur 11. júlí. Hjólaðir km Gullfoss- Laugarvatn: 38 km, hm: 228. Silfurhringinn 66,5 km. hm: 391. Samtals hjólaðir km. 105.

Team Rynkeby mun taka þátt í KIA Silfurhringnum sem er 66,5 km ræsing kl: 18:00. https://www.gullhringurinn.is/ g Hringferð Team Rynkeby endar með grillveislu á Laugarvatni í boði KIA Gullhringsins og þar með lýkur Íslandsferð Team Rynkeby 2020.
Leggjum af stað frá Vík kl: 9:00 og keyrum að Gullfossi 180 km. Hjólum síðan til Laugarvatns um 38 km. Gullfoss-Laugarvatn 8.1
KIA Silfurhringurinn 66,5 km Dagur 8.2

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir