Team Tengill tekur þátt í WOW Cyclothon

Starfsmenn Tengils taka þátt í WOW Cyclothon þar sem hjólað er með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland dagana 23.-26. júní, til styrktar uppbyggingar Batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi. 

Áheitanúmer þeirra er 1024 og heitir liðið Team Tengill og er hægt að styrkja málefnið á eftirfarandi hátt:

Upphæð: 1000 kr    Sendið SMS skilaboðin: 1024 í símanúmerið: 907 1501

Upphæð: 3.000 kr   Sendið SMS skilaboðin: 1024 í símanúmerið: 907 1503

Upphæð: 5.000 kr   Sendið SMS skilaboðin: 1024 í símanúmerið: 907 1505

Upphæð: 10.000 kr Sendið SMS skilaboðin: 1024 í símanúmerið: 907 1510

WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin verður haldin í fjórða sinn dagana 23. júní -26. júní .  Í keppninni verður hjólað  með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland, um Hvalfjörð og yfir Öxi á innan við 72 tímum.  Skráningu í keppnina lauk í byrjun maí en yfir þúsund manns eru skráðir til leiks í 115 liðum.

Markmiðið er ekki eingöngu að hjóla til sigurs heldur einnig að styðja gott málefni. Í fyrra söfnuðust um 15 milljónir til styrktar tækjakaupum fyrir bæklunarskurðdeild Landspítalans. Í ár verður hjólað til styrktar uppbyggingu Batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi en málefni geðsjúkra hafa almennt ekki notið mikils stuðnings í samfélaginu.

Söfnunarfénu verðu varið til að byggja upp aðstöðu til hreyfingar á Kleppi og til að ráða íþróttafræðing til að leiða verkefnið. Aðstendur WOW Cyclothon vilja einnig leggja sitt lóð á vogaskálarnar í baráttu gegn fordómum í garð geðsjúkra.

Fleiri fréttir