Teiknimyndir, forvarnarverkefni gegn einelti
Í byrjun maí hefjast tökur á forvarnarverkefni gegn einelti í formi stuttmyndar og fara tökur fram á Hvammstanga, Laugarbakka og í nánasta umhverfi. Stefnan er að sýna stuttmyndina í grunn- og framhaldsskólum landsins með umræðutíma að sýningu lokinni. Einnig eru bundnar vonir við að stuttmyndin fái sýningu í fjölmiðlum.
Hugmyndin á rætur sínar að rekja til leiklistarnámskeiðs Halldóru Guðjónsdóttur á Unglingalandsmóti UMFÍ í ágúst 2013. Námskeiðið sóttu þau Ásdís Helga Másdóttir, Ísak Þórir Ísólfsson Líndal og Nína Guðbjörg Gunnarsdóttir. Þá hafði Halldóra verið með óljósa hugmynd að forvarnarverkefni. Á námskeiðinu kastaði hún hugmynd fram og lögðu þau höfuðin í bleyti og stóðu að lokum uppi með þessa hugmynd sem nú verður framkvæmd, að gera stuttmynd. Halldóra segir þessa hugmynd ekki hafa geta orðið til án Ásdísar, Ísaks og Nínu. Hugmyndin hefur verið í stöðugri þróun og fengu þau til liðs við sig Þórunni Guðlaugsdóttir, framleiðanda og leikkonu, og Natan Jónsson, leikstjóra og rithöfund.
Stuttmyndin, sem ber heitið Teiknimyndir, fjallar líkt og áður sagði um einelti og er sérstök áhersla lögð á neteinelti. Myndin mun sýna á einlægan og opinn hátt hvaða afleiðingar einelti getur haft í för með sér. Halldóra segir einelti hafa breyst frá því hún var sjálf í grunnskóla, nú fari einelti mikið fram á netinu sem og öðrum rafrænum miðlum. Í nútímasamfélagi er því orðið erfiðara að fylgjast með og veita aðstoð þar sem hennar er þörf. Hún segir mikilvægt að bera virðingu fyrir manneskjunni því það sjáist ekki alltaf utan á fólki hvað það er að glíma við. Boðskapur verkefnisins er því umburðalyndi og náungakærleikur.
Í aðalhlutverkum verða þau Ísak, Ásdís og Nína og fara þau með hlutverk Tristans, Vigdísar og Þuríðar í myndinni. Á síðustu vikum hafa farið fram æfingar í Grunnskóla Húnaþings vestra og er hópurinn afar þakklátur hjálpsemi Sigurðar Þórs Ágústssonar skólastjóra sem og sveitarfélaginu í heild.
Þau leita nú að nokkrum leikurum fyrir tökurnar í maí. Nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra koma til með að leika stór hlutverk í myndinni en það á enn eftir að finna fjóra aðila til að leika foreldra sem og nokkra aðra, bæði kvenkyns og karlkyns milli tvítugs og þrítugs, til að vera með þeim einn daginn í mjög mikilvægri senu.
Áhugasömum er bent á að hafa samband á netfangið teiknimyndir@gmail.com.
Þessa dagana eru þau í mikilli leit að styrkjum þar sem verkefni af tagi kosta dágóðan pening í framleiðslu. Þeir sem hafa tök á því að veita þeim lið geta lagt inn á reikning Leikfélagsins Hamfarir sem sér um framleiðslu verkefnisins eða haft samband við þau á netfangið teiknimyndir@gmail.com.
Reikningsnúmerið er 0101-26-020140 og kennitalan er 440314-1470.
Norðanátt.is segir frá þessu.
Myndir frá æfingu: