Teitur Björn til liðs við Íslensku lögfræðistofuna

Teitur Björn Einarsson, lögmaður, bætist í hóp lögmanna Íslensku lögfræðistofunnar nú í september og verður með starfsstöð í Skagafirði. Teitur er kvæntur Margréti Gísladóttur og eiga þau saman tvo syni.

„Við sinnum margvíslegum verkefnum og ráðgjöf fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki um land allt og það er tímabært að færa út kvíarnar svo auðsóttara verði að veita persónulega þjónustu á fleiri stöðum á landinu. Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fá Teit til liðs við hópinn og við hlökkum til þess að geta í auknum mæli sinnt ráðgjöf utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir Haukur Örn Birgisson, einn eiganda Íslensku lögfræðistofunnar, en Teitur Björn er með starfsstöð í Skagafirði.

Teitur útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2006 og varð héraðsdómslögmaður árið 2007. Teitur hefur í gegnum tíðina sinnt félaga-, skatta- og lögfræðiráðgjöf ásamt því að hafa gegnt fjölbreyttum trúnaðar- og félagsstörfum. Hann var aðstoðarmaður fjármálaráðherra árin 2014-2016 og þingmaður Sjálfstæðisflokksins kjörtímabilið 2016-2017.

Teitur er kvæntur Margréti Gísladóttur og eiga þau saman tvo syni.

Íslenska lögfræðistofan annast alla almenna lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Hjá stofunni starfa átta lögmenn með málflutningsréttindi á öllum dómstigum.

Íslenska lögfræðistofan er með aðsetur í Stóra-Turni Kringlunnar.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir