Tekið á móti framboðslistum 10. maí að Húnavöllum

Framboðsfrestur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí nk. rennur út þann 10. maí kl. 12:00 á hádegi. Í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans segir að kjörstjórn Húnavatnshrepps muni taka á móti framboðslistum á þeim degi frá klukkan 10:00 til 12:00 á hádegi að Húnavöllum.

„Einnig er hægt að koma framboðslistum til kjörstjórnar fyrir þann tíma óski frambjóðendur þess,“ segir í auglýsingunni.

 

Fleiri fréttir