Textílseturs Íslands sækir um gistileyfi
Á fundi bæjarráðs Blönduóssbæjar í gær var bréf frá Sýslumanninum á Blönduósi 8. júní 2011tekið fyrir en þar er óskað eftir umsögn Blönduósbæjar um umsókn Jóhönnu E. Pálmadóttur, f.h. Textílseturs Íslands ses. um leyfi til gistingar í flokki II í Kvennaskólanum á Blönduósi.
Með vísan til laga um veitingastaði, gistiheimili og skemmtanahald, þar sem sveitarstjórn er falið að veita umsögn um afgreiðslutíma og staðsetningu staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um, samþykkir bæjarráð fyrir sitt leyti umsóknina. Samkvæmt fylgiskjali með umsókninni er hnykkt á því að gisting sem fram fer í Kvennaskólanum muni eingöngu vera tengd starfsemi sem í húsinu er.