Það er bannað að brenna sinu

Á bloggsíðu lögreglunnar í Skagafirði segir að það gætir á misskilning og þekkingarleysis meðal manna vegna sinubrennu, margir telja nægja að hringja í slökkvilið og tilkynna að þeir ÆTLI að brenna sinu en reglugerð kveður skýrt á um að slíkt er óheimilt.

Brot á þessu getur bakað mönnum bótaskyldu fyrir því tjóni sem af kann að hljótast eða sekt fyrir brot á ákvæðum reglugerðarinnar.

Sinubrennur og meðferð elds á víðavangi.

Rétt er að benda á að samkvæmt reglugerð 157/1993 er óheimilt að kveikja eld á víðavangi og að eftir 1. maí er óheimilt að brenna sinu. Þó getur sýslumaður gefið ábúendum lögbýla leyfi fyrir sinubrennu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Hægt er að nálgast reglugerðina á heimasíðunni reglugerd.is með því að slá inn 157/1993 í leitarstreng.

Fleiri fréttir