Þæfingur á Þverárfjallsvegi
Vaxandi suðaustan átt var á Ströndum og Norðurlandi vestra í nótt, þykknaði upp, 8-15 með snjókomu. Lægir og styttir að mestu upp í dag, en snýst í vaxandi norðaustan átt með snjókomu seint í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn á morgun. Flestir vegir eru færir á Norðurlandi, ýmist er hálka eða snjóþekja en á Þverárfjalli er þæfingur og skafrenningur. Éljagangur er nokkuð víða.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðan 10-20 m/s, hvassast um landið norðvestanvert. Snjókoma og sums staðar talsverð snjókoma um tíma um landið norðanvert, en skýjað með köflum og þurrt sunnanlands. Frost 0 til 8 stig.
Á sunnudag:
Norðan 13-20 m/s og snjókoma eða él, en þurrt og bjart að mestu sunnanlands. Fer að lægja vestantil síðdegis. Kólnandi veður.
Á mánudag:
Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, þurrt og bjart að mestu, en norðvestan 10-15 og stöku él austanlands fram eftir degi. Frost 3 til 12 stig, kaldast til landsins.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt og víða bjartviðri, en skýjað með köflum við suðurströndina. Áfram kalt í veðri.
Á miðvikudag:
Heldur vaxandi suðaustan átt og þykknar upp sunnan- og vestanlands með dálitlum éljum og dregur úr frosti, en áfram hæglætisveður og kalt um landið norðaustanvert.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna austanátt, snjókoma eða él sunnantil, en úrkomulítið fyrir norðan. Heldur hlýnandi veður.