Þæfingur eða hálkublettir á vegum

Þæfingur er á Þverárfjallsvegi, Öxnadalsheiði og á Siglufjarðarvegi annars greiðfært eða hálkublettir á vegum á Norðurlandi vestra. Veðurstofan gerir ráð fyrir austan 10-18 m/s og él í dag, hvassast á annesjum. Frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Austan 10-18 m/s, en 18-23 við S-ströndina. Slydda eða snjókoma með köflum og rigning syðst. Hiti víða 0 til 5 stig S- og V-lands, en 0 til 5 stiga frost fyrir norðan og austan.

Á laugardag:
Hægt minnkandi austanátt. Él SA-til á landinu, en bjart veður N- og A-lands. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum, en frostlaust við ströndina að deginum.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Líkur á norðaustanátt með lítilsháttar éljum fyrir norðan og austan, en björtu veðri SV-til. Fremur kalt.

Fleiri fréttir