Þæfingur og hálka á vegum og stormviðvörun á NA og A-landi

Greiðfært er á öllum leiðum á Norðurlandi vestra en þæfingur eða hálka er á flestum leiðum. Verið er að moka Siglufjarðarveg en samkvæmt vef Vegagerðarinnar eru 17 metrar á sekúndu og tveggja stiga frost á leiðinni milli Fljóta og Siglufjarðar. Við Stafá í Fljótum er 13 m/s og 1 gráðu frost. Snjókoma er á Þverárfjallsvegi 9 m/s og 5 gráðu frost. Éljagangur er á öðrum leiðum á Norðurlandi vestra og full ástæða til að fara varlega. Á Holtavörðuheiði er skafrenningur 11 m/s og 6 stiga frost og hálka á vegi.

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun þar sem búist er við stormi (meðalvindhraða meiri en 20 m/s) á NA- og A-landi með morgninum og fram yfir hádegi. Annars verðu veðrið í dag á þá leið að á Norðurlandi vestra verður norðan 13-18 m/s og snjókoma, en 3-8 undir kvöld og úrkomulítið. Austan 8-13 í fyrramálið og dálítil él, en norðlægari seint á morgun og úrkomumeira. Frost 1 til 7 stig, en heldur mildara á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Gengur sunnan 18-23 m/s, en suðvestlægari um kvöldið. Snjókoma eða slydda S- og V-lands í fyrstu, síðar talsverð rigning á þeim slóðum. Úrkomuminna NA-til. Hlýnandi, hiti 3 til 9 stig um kvöldið.

Á föstudag:
Snýst í vestan 8-15 m/s með rigningu og síðar slyddu, en éljum um kvöldið. Kólnandi veður, hiti um og yfir frostmarki með S- og V-ströndinni undir kvöld, en frystir í innsveitum.

Á laugardag:
Vestanátt og dálítil él, en víða léttskýjað á A-helmingi landins. Frost 0 til 6 stig mest í innsveitum NA-til, en sums staðar frostlaust við SV-ströndina.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt með éljum í flestum landshlutum. Kalt í veðri.

Fleiri fréttir