Þakkir frá Húnavatnshreppi vegna gangna

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps og fjallskilastjórnir þakka af alhug þeim fjölmörgu sem brugðust skjótt við og tóku þátt í gangnastörfum í sveitarfélaginu í síðustu viku. Það er ómetanlegt að finna hversu samfélagið allt var tilbúið til að leggja hönd á plóginn til þess að hlutirnir gætu gengið upp.

Það er okkur mikils virði að finna fyrir stuðningi ykkar og velvilja þegar á reynir.

Með kærri kveðju og þakklæti, sveitarstjóri, sveitarstjórn og fjallskilastjórnir Húnavatnshrepps.

Fleiri fréttir