Þakklát fyrir sýndan stuðning

Haldin var fjölskylduskemmtun til að sýna samstöðu í verki með Guðjóni Óla þann 10. nóvember sl. og mættu rúmlega 500 manns á skemmtunina sem haldin var í Félagshemilinu á Blönduósi. Nú hefur fjölskylda Guðjóns Óla sent frá sér bréf undir yfirskriftinni „Kærar þakkir til allra“ og var það birt á vefmiðlinum Húna.is.

„Við fjölskyldan viljum þakka fyrir ómetanlegan stuðning sem við höfum fundið fyrir síðan litli stubburinn okkar hann Guðjón Óli fór í aðgerð þann 26. mars og varð fyrir súrefnisskorti sem svo leiddi til alvarlegs heilaskaða. Leiðin frá aðgerðinni afdrifaríku hefur verið löng, erfið og oft á tíðum virst algerlega ófær. En þegar á reynir er gott að eiga góða að! og  höfum við fjölskyldan svo sannarlega fengið að kynnast því,“ segir í upphafi bréfsins.

Í bréfinu kemur fram að fjölskyldan sé djúpt snortinn yfir þeim samhug sem þeim var sýndur á fjölskylduskemmtuninni sem þau segja að hafi verið svo mikill að engin orð fá því lýst. „Eða eins og einn góður maður sagði við okkur „Það hefði verið hægt að sameina Austur Húnavatnssýsluna eins og hún leggur sig og meira að segja við Vestur sýsluna líka“ og það finnst okkur segja meir en mörg orð,“ segir í bréfinu. Bréfið í heild sinni má lesa á vef Húnahornsins.

Fleiri fréttir