Þarfagreining á námsframboði og tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig

Kynningarfundir um niðurstöður á rannsóknum sem eru liður í eflingu menntunar og atvinnulífs á svæðinu verða haldnir í Austur-Húnavatnssýslu á morgun og fimmtudag. Rannsóknirnar eru Þarfagreining á námsframboði á Norðurlandi vestra og Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig á Norðurlandi vestra og voru þær unnar á árinu 2013.

Kynningarfundirnir eru öllum opnir og verða haldnir á eftirfarandi dögum:

  • Miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00 í húsnæði Rannsóknaseturs HÍ á Skagaströnd
  • Fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi

„Rannsóknirnar eru liður í eflingu menntunar og atvinnulífs á svæðinu og því er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta,“ segir í frétt á vef Svf. Skagastrandar.

Gert er ráð fyrir að kynningin taki u.þ.b. 45 mín. og síðan verða umræður á eftir. Fulltrúar Farskólans verða á fundinum  til að kynna nám og námskeið og svara fyrirspurnum í tengslum við niðurstöður þarfagreininganna.

 

Fleiri fréttir