Þátttökuréttur í tölti og skeiði á Landsmóti hestamanna 2014
30 efstu töltarar landsins vinna sér inn þátttökurétt í töltkeppni Landsmóts hestamanna sem haldið verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 30. júní til 6. júlí.
Nú eru hestamótin hafin og knapar farnir að keppa í tölti og skeiði til að eiga möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á Landsmótinu. Þeir knapar sem geta unnið sér inn þátttökurétt í skeiðinu verða að ná góðum tímum í 100 m, 150 m, og 250 m skeiði á löglegu móti.
Stígandi birti á vef sínum þau skilyrði sem Keppnisnefnd LH vill árétta vegna þess árangurs sem gildir inn á stöðulistann:
- Árangur úr T1 í fullorðinsflokknum gildir – ath: frá og með Landsþingi LH 2012, gildir árangur úr T3 ekki.
- Knapar 18 ára og eldri eru gjaldgengnir til þátttöku, ef þeir ná árangri í flokki/keppni fullorðinna.
- 30 efstu töltarar landsins eiga þátttökurétt í Landsmótinu.
Skeið:
- Í 100 m skeiði – 20 bestu tímarnir
- Í 150 m skeiði – 14 bestu tímarnir
- Í 250 m skeiði – 14 bestu tímarnir
Endanlegir stöðulistar í tölti og skeiði verða birtir 22. júní nk.