Þegar menning er atvinnulíf

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vetra stendur fyrir málstofu um  tengsl akademíu og menningartengdrar ferðaþjónustu. Markmið málstofunnar er að kalla á umræðu um það hver aðkoma hugvísindaakademíunnar geti verið, eða skuli vera, að ferðaþjónustu, sem á örskömmum tíma er orðin ein af aðalatvinnugreinum landsins.

Unnið er markvisst að uppbyggingu greinarinnar og framundan blasir enn við aukning að því marki sem valda mun róttækum breytingum á íslensku samfélagi. Sjónum verður beint að menningartengdri ferðaþjónustu, fagþekkingu hugvísinda á því sviði og stefnu, eða stefnuleysi, þeirra sem að uppbyggingunni standa. Stefnt er að því að umræða málstofunnar snúist meðal annars um hvernig þekking þeirra sem hafa menntað sig á sviði hug- og mannvísinda geti nýst til þess að auka gæði fyrirtækja og verkefna og um leið bætt atvinnumöguleika menntaðs fólks í hinni nýju atvinnugrein.

Fyrirlestar:

Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Norðurlandi vestra: Þegar menning er atvinnulíf

Áki G. Karlsson, þjóðfræðingur: Hagnýt(t) og ónýt(t) fræði: Hvernig þjóðfræðin bjó til

menningartengda ferðaþjónustu á Íslandi

Katrín Jakobsdóttir, íslenskufræðingur og mennta- og menningarmálaráðherra: Menning og

atvinna – andstæður eða samstæður?

Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands: Menningarminjar og menningartengd ferðaþjónusta

Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða: Rótað í framtíðinni: Gæðaþróun og samvinna

Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar: Friðargæslusveit NESCO

og upphefðin að utan

Málstofustjóri: Valdimar Tryggvi Hafstein, dósent í þjóðfræði

Málstofan verður haldin í aðalbyggingu HÍ, stofu 220 og hefst kl.13.00

Fleiri fréttir