Þeir sem duttu í lukkupottinn voru...

Dregið var í áskriftarleik Feykis á dögunum en þar var til mikils að vinna. Í fyrsta vinning er gisting fyrir tvo á Hótel KEA og miðar á leiksýningu að eigin vali á yfirstandandi leikári hjá Leikfélagi Akureyrar. Allir áskrifendur Feykis áttu möguleika á þeim vinningi og var það Sigríður Magnúsdóttir frá Hvammstanga sem datt í lukkupottinn.

Aðeins nýir áskrifendur Feykis áttu möguleika á að vinna annan og þriðja vinning. Annar vinningur er frábær snjallsími úr Galaxy seríu Samsung en síminn hefur allt sem flottur sími þarf í dag. Það var Fjóla Björnsdóttir frá Sauðárkróki sem hreppti vinninginn. Þriðji vinningurinn er bráðsmart NexTime veggklukka frá Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki en það var Agnes Hulda Agnarsdóttir sem hlaut veggklukkuna.

Feykir óskar vinningshöfum innilega til hamingju og býður nýjum áskrifendum velkomna í áskrift.

Fleiri fréttir