,,Þetta getur verið spurning um líf eða dauða"
Eftir að fæðingardeildinni var lokað á Sauðárkróki fyrir um þremur árum hefur færst í aukana að barnshafandi konur fæði á leið sinni til Akureyrar. Feykir sagði frá því í síðustu viku að barn kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum og ekki fyrir löngu þá fæddi kona nýverið barn á bílastæðinu í Varmahlíð. Vikudagur sagði svo frá því þegar kona fæddi í miðju Dalsmynni á leið sinni frá Húsavík til Akureyrar í apríl sl.
„Þetta er hroðalegt ástand,“ segir Málfríður Þórðardóttir ljósmóðir á Akureyri, í viðtali við Vikudag.
„Þetta getur verið spurning um líf eða dauða. Fólk finnur fyrir óöryggi og veit ekki hvort það muni ná á sjúkrahús í tæka tíð. Það var t.d. par sem keyrði á 150 km hraða til Akureyrar, þar sem konan var við það að fæða í bílnum. Barnið kom í heiminn sjö mínútum eftir þau komu til okkar og foreldrarnir voru í sjokki. Þessu verður að kippa í lag, við megum ekki bíða eftir því að eitthvað hræðlilegt gerist,“ segir Málfríður.
Vegalengdin frá Sauðárkróki til Akureyrar er 120 km og tæpir 100 km eru frá Húsavík. Þeir sem koma frá Þórshöfn þurfa hins vegar að leggja á sig 250 km ferðalag. Málfríður sendi heilbrigðisráðherra bréf í síðustu viku vegna þessa máls og munu ljósmæður hitta ráðherrann á næstunni. „Hann hafði nú fyrir því að svara mér en sagði þetta vera spurningu um peninga“.
Samkvæmt tölum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri eru fæðingar um 20% færri í ár miðað við sama tíma í fyrra. „Margar konur treysta sér einfaldlega ekki í þessa flutninga á milli staða af ótta við að barnið fæðist á leiðinni og þá áhættu sem slíku fylgir. Þeim finnst öruggara að fæða heima hjá sér.“