Þingfundir vetrarins urðu 94 og stóðu í rúma 550 tíma

Þingmenn Norðvesturkjördæmis.
Þingmenn Norðvesturkjördæmis.

Þingfundum 152. löggjafarþings var frestað sl. fimmtudag en þá hafði þingið verið að störfum frá 23. nóvember til 28. desember á seinasta ári og frá 17. janúar til 16. júní. Hér fyrir neðan má sjá tölfræðilegar upplýsingar um löggjafarþingið sem sendar voru fjölmiðlum í morgun frá skrifstofu Alþingis.

Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 47 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klst. og 40 mín. Lengsta umræðan var um fjárlög 2022 en hún stóð samtals í 35 klst. og 36 mínútur. Þingfundadagar voru alls 80.

Af 205 frumvörpum varð alls 81 að lögum, 121 var óútrætt, tvö voru kölluð aftur og eitt ekki samþykkt. Af 147 þingsályktunartillögum voru 29 samþykktar, 116 tillögur voru óútræddar og tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar.

22 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. Níu beiðnir um skýrslur komu fram, þar af sex til ráðherra og þrjár til ríkisendurskoðanda. Þrjár munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 377. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 35 og var 30 svarað en ein kölluð aftur. 342 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 249 þeirra svarað, 93 biðu svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 765 og tala prentaðra þingskjala var 1402.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 200. Sérstakar umræður voru 21.

Samtals höfðu verið haldnir 374 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 16. júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir