Þingsályktun um átak til atvinnuuppbyggingar í Austur-Húnavatnssýslu samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í gær tillögu til þingsályktunar um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins. Alls greiddu 38 þingmenn með tillögunni, einn greiddi ekki atkvæði og 24 voru fjarstaddir. Enginn var á móti. Sjö þingmenn úr Norðvesturkjördæmi lögðu fram tillöguna, þau Einar K. Guðfinnsson, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson, Guðbjartur Hannesson, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Á vef Húnahornsins kemur fram að tillagan gengur út á að Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa það fyrir þá uppbyggingu sem fylgir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins sem iðnaðarkosts, svo sem fyrir gagnaver.

Þingsályktunartillagan var lögð fram af þáverandi þingmönnum Norðvesturkjördæmis á síðasta löggjafarþingi en var ekki útrædd og var hún því flutt að nýju á þessu þingi.

Í greinargerð með tillögunni segir að Norðurland vestra hafi gengið í gegnum miklar breytingar er varða atvinnuhætti mörg undanfarin ár. Fækkun starfa í hefðbundnum atvinnugreinum, svo sem sjávarútvegi og landbúnaði, hefur leitt til mikillar byggðaröskunar sem birtist í mikilli fólksfækkun sem vart á sér hliðstæður hér á landi hin síðari ár. Samkvæmt upplýsingum Byggðastofnunar hefur íbúum á svæðinu fækkað um tæplega 1.000 milli áranna 1997 og 2010. Til samanburðar voru íbúar Blönduóss um 880 árið 2011 þannig að fækkunin nemur rúmlega íbúafjölda þess sveitarfélags yfir 14 ára tímabil.

Fleiri fréttir