Þjóðarsáttmála um læsi
Haustið 2015 mun mennta- og menningarmálaráðuneyti í samvinnu við sveitarfélög og skóla vinna að Þjóðarsáttmála um læsi með það að markmiði að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns við lok grunnskóla. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað komu sína til undirritunar samningsins í Skagafirði þann 1. september nk. kl 14. og á Blönduósi kl. 16.
Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að verkefnið sé hluti af aðgerðaáætlun í kjölfar Hvítbókar um umbætur í menntun, sem miðar að því að á næstu fimm árum verði innleiddar margþættar umbætur sem mun skila okkur enn betra menntakerfi til framtíðar.
Í tengslum við verkefnið gerir mennta- og menningarmálaráðuneytið og hvert sveitarfélag samning eða yfirlýsingu um sameiginlegan skilning á mikilvægi læsis og að unnið verði eftir fremsta megni að því marki að a.m.k. 90% nemenda í viðkomandi sveitarfélagi geti lesið sér til gagns árið 2018 en landsmeðaltalið er 79%. Framlag ráðuneytisins verður í formi ráðgjafar, stuðnings, lesskimunar, upplýsingaveitu, þróunarstarfs og aukins samstarfs við foreldra.
Undirskriftir fara fram á 11 stöðum um landið á tímabilinu 24. ágúst til 22. september.
„Það er gott að lesa“
Í fréttatilkynningunni segir að lestrarfærni sé forsenda virkrar þátttöku í lýðræðissamfélagi en bágur lesskilningur getur haft neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með atvinnutækifæri síðar meir.
„Margt er vel gert í skólastarfi hér á landi og sýna alþjóðlegar kannanir að Íslendingar búa við gott menntakerfi, þar sem helstu styrkleikar eru jafn námsárangur milli skóla, vellíðan nemenda og sveigjanlegt skólakerfi með lítilli miðstýringu. Það veldur þó miklum áhyggjum að lesskilningur hefur versnað og að við lok grunnskóla geti stór hluti barna ekki lesið sér til gagns. Ástæðan er ekki augljós og vafalaust er um að ræða flókið samspil margra þátta en mikilvægast er að snúa vörn í sókn,“ segir í fréttatilkynningunni. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins.
Við tilefnið hefur lagið „Það er gott að lesa“ verið gefið út, lag og texti er eftir Bubba Morthens en flytjandi er Ingó veðurguð.
https://youtu.be/UMqi4FRTE4Y