Þjóðleikur á Norðurlandi vestra

Þjóðleikur er verkefni sem fræðsludeild Þjóðleikhússins stendur fyrir í samstarfi við fjölmarga áhugasama aðila á norðurlandi vestra. Þjóðleikur er keyrður samhliða á Austurlandi, Suðurlandi, Vestfjörðum og Eyþingi, en verkefnin eru sjálfstæð í landshlutunum.

Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks og getur hvaða hópur norðlenskra ungmenna sem er tekið þátt. Einu skilyrðin eru að a.m.k. einn fullorðinn einstaklingur (yfir tvítugu) leiði hópinn, að meðlimir hópsins séu að lágmarki 8 talsins og á aldrinum 13-20 ára. Skólahópar undir leiðsögn kennara, ungliðahreyfingar áhugaleikfélaga, frístundahópar, vinahópar..., allir mega vera með.

Hver hópur setur upp eitt af þremur leikverkum sem hafa verið skrifuð sérstaklega fyrir Þjóðleik. Hóparnir frumsýna þegar þeim hentar í sinni heimabyggð. Lokahátíð er áætluð í apríl en eftir á að ákveða dagsetningu.  Útfærsla hátíðarinnar verður kynnt síðar en hún kemur til með að taka mið af því fjármagni sem verkefnið hefur yfir að ráða.

Markmið Þjóðleiks:

•          Að vekja áhuga ungs fólks á leiklist og efla læsi þeirra á listformið.

•          Að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt við landsbyggðina.

•          Að miðla af fagþekkingu leikhússins til leikhúsáhugafólks í landinu.

•          Að styrkja íslenska leikritun.

 

Auglýst er eftir áhugasömum leikhópum til að taka þátt í verkefninu og skulu umsóknir berast til irisb@arskoli.is,   jofridur@blonduskoli.is eða gudrunstei@hunathing.is

Umsóknafrestur er til og með 11. október 2012

Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hjá Írisi Baldvinsdóttur s. 8461336 eða Jófríði Jónsdóttur s. 8587867.

Fleiri fréttir