Þjóðleikur - Leiklist fyrir ungt fólk á Norðurlandi
Þjóðleikur er stórt leiklistarverkefni sem haldið er á öllu Norðurlandi í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjölmarga áhugasama aðila. Verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna. Auglýst er eftir hópum til þátttöku.
Hvaða hópar geta sótt um?
Allir hópar mega sækja um að vera með í Þjóðleik, svo lengi sem þeir uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Að meðlimir hópsins (leikararnir) séu að minnsta kosti átta talsins og allir á aldrinum 13-20 ára, ekkert hámark er á fjölda.
- Að fyrir hópnum fari einn eða fleiri leiðbeinendur eldri en 20 ára, þar með talinn að minnsta kosti einn sem gegnir hlutverki leikstjóra.
Hvað svo?
Þrjú glæný leikrit hafa verið skrifuð fyrir Þjóðleik, sem hóparnir geta valið úr. Höfundarnir eru: Jón Atli Jónasson, Kristín Ómarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson sem skrifa verk í sameiningu. Hóparnir velja sér eitt af þessum verkum.
- · Stuðningur er veittur til hópanna í formi ráðgjafar og námskeiðahalds
- · Leiðbeinendur hópanna fara á námskeið í Þjóðleikhúsinu helgina 15. – 17. október 2010 þar sem listrænir stjórnendur í fremstu röð verða til leiðsagnar.
- · Hver hópur setur upp leiksýningu í sinni heimabyggð og frumsýnir þegar honum hentar
- · Tækninámskeið á Norðurlandi (ljósahönnun og fl.) helgina 7. – 9. jan. 2011. Bæði leiðbeinandanámskeið og tækninámskeið eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
- · Helgina 1.-3. apríl verður haldin lokahátíð þar sem hóparnir koma saman með sýningar sínar.
Umsóknarfrestur er til 6. október 2010.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rósenborgar og gegnum facebook-síðu Þjóðleiks á Norðurlandi.
Einnig má nálgast umsóknareyðublöð hjá Vigdísi Jakobsdóttur vigdis@thjodleikhusid.is sími: 899 0272 og Guðrúnu Brynleifsdóttur gudrunb@skagafjordur.is sími: 455 6115 en báðar sitja þær í framkvæmdaráði Þjóðleiks.
Umsóknir sendist á netfangið: thjodleikur@gmail.com eða bréfleiðis til Þjóðleiks á Norðurlandi, ráðhús, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkrókur
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.