Þjónustuhundur ársins hjá HRFÍ

Þjónustuhundur ársins var heiðraður á nóvembersýningu Hundaræktarfélags Íslands um sl. helgi. Á Húna.is kemur fram að hundurinn sem var heiðraður að þessu sinni heitir Freyja og er í þjónustu lögreglunnar á Blönduósi. Eigandi Freyju er Höskuldur B. Erlingsson lögregluvarðstjóri á Blönduósi.

Undir heitið þjónustuhundur ársins tilheyra þeir hundar sem vinna allan ársins hring að þjónustu í samfélaginu. Í ár varð fíkniefnahundurinn Freyja fyrir valinu en tilnefna má lögreglu-, fíkniefna-, björgunarhunda og fleira,“ sagði Höskuldur í samtali við Húnahornið.

Freyja kemur upprunalega frá lögreglunni í Gautaborg í Svíþjóð og hefur starfað sem fíkniefnahundur frá árinu 2006.

Fleiri fréttir