Þoka í Húnavatnssýslum og á Öxnadalsheiði

Vegagerðin biður vegfarendur sem fara um Þverárfjall, veg númer 744, um að sýna aðgát því þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Þoka er í Húnavatnssýslum og á Öxnadalsheiði. Þungatakmarkanir eru á Þverárfjallsvegi og Siglufjarðarvegi vegna hættu á slitlagsskemmdum og er ásþungi takmarkaður við 10 tonn.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg breytileg átt, en norðaustan 3-8 á annesjum fram eftir degi. Skýjað með köflum og þurrt að kalla. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður norðan 3-8 og dálítil él eða slydduél á morgun. Hiti 2 til 7 stig en kólnar á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum á S-verðu landinu, annars skýjað að mestu og stöku él. Hiti 3 til 8 stig á S- og V-landi yfir daginn, annars um frostmark.

Á föstudag og laugardag:
Norðan og norðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum en úrkomulítið N- og A-lands. Suðaustanátt, 3-8 m/s S-lands og skúrir eða él. Frost 0 til 8 stig, en hiti 0 til 5 stig á S- og V-landi að deginum.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austan og norðaustanátt. Bjartviðri á SV- og V-landi, en víða él annars staðar. Áfram fremur kalt í veðri.

Fleiri fréttir