Þokuloft allvíða á Norðurlandi vestra
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum en allvíða þokuloft á annesjum. Hiti 3 til 8 stig, en svalara í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðaustan 8-13 m/s við SV- og S-ströndina og lítilsháttar væta, en hægara og bjart með köflum fyrir norðan og austan. Hiti 3 til 8 stig, en víða næturfrost inn til landsins.
Á fimmtudag:
Suðaustan 5-13 m/s og rigning með köflum um landið S- og V-vert, annars heldur hægari og þurrt að kalla. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Fremur hæg austlæg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Áfram milt veður.
Á laugardag:
Norðaustan 8-15 m/s, hvassast NV-til. Lítilsháttar él NA- og A-lands en slydda eða rigning við SA-ströndina um kvöldið. Hiti um frostmark fyrir norðan en 2 til 7 stig sunnantil.
Á sunnudag:
Austan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s. Rigning eða slydda með köflum fyrir austan, bjartviðri vestanlands en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti 1 til 8 stig, mildast SV-til.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með úrkomu fyrir norðan og hita nálægt frostmarki, en þurrt og hiti víða 2 til 7 stig syðra.