Þór Saari hættur við að leggja fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina
Þór Saari hefur dregið ákvörðun sína um að leggja fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina þar sem forystumenn stjórnaflokkana kröfðust þess að hún yrði tekin á dagskrá þingsins í dag. -Þar sem slíkt er í andstöðu við þingsköp og þá reglu að þingmál eigi að liggja frammií a.m.k. tvær nætur áður en þau eru rædd hef ég ákveðið að draga málið til baka frekar en að una flýtimeðferð á því, segir Þór Saari.
-Ef stjórnarmeirihlutinn getur ekki komið fram með raunhæfa tímasetta áætlun um hvernig á að ljúka stjórnarskrármálinu nú á allra næstu dögum er þó augljóst að þau ráða ekki við málið inna sinna raða og ber því að fara frá, segir Þór.