Þór Saari vill frekar styttingu þjóðvegar 1 framhjá Blönduósi en fara í Vaðlaheiðargöng

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur skorað á Alþingi Íslendinga að samþykkja frumvarp fjármálaráðherra um fjármögnun Vaðlaheiðarganga hið fyrsta, en tilboð í gerð ganganna rennur út 14. júní nk. Tafir á verkefninu hafa þegar valdið umtalsverðum skaða, segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Þar segir að gerð ganganna sé mikilvæg samgöngubót fyrir alla þá sem ferðast um Norðurland og mikið öryggisatriði, ekki síst vegna aðgengis að heilbrigðisþjónustu, sem verulega hefur verið skert í nærbyggðum Eyjafjarðar. Framkvæmdin mun þétta byggð frekar á Norðausturlandi með bættu umferðaröryggi og jafnframt hafa jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu og atvinnustig svæðisins.

Sjá áskorunina HÉR

Tölvupóstur þessa efnis var sendur öllum þingmönnum landsins og benti Þór Saari sendandanum Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson  á  tengil á grein frá forstöðumanni Lánamála ríkissjóðs og svarar: „Vaðlaheiðargöng munu aldrei standa undir sér og munu því taka lánsfé frá öðrum brýnni framkvæmdum. Ég tel að þið ættuð frekar að beita ykkur fyrir styttingu vegarins framhjá Blönduósi, þeim annars ágæta bæ“, segir alþingismaðurinn Þór Saari

Fleiri fréttir