Þóra vill á Bessastaði
Í yfirlýsingu sem nýlega barst fjölmiðlum segir Þóra Arnórsdóttir sjónvarpskona frá því að undanfarnar vikur og mánuði hafi hún fundið fyrir hvatningu víða að frá fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu um að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. -Ég hef farið yfir þessi mál með fjölskyldu minni og vinum og hefur stuðningur þeirra verið mér ómetanlegur.
Þóra segir að hlutverk forseta Íslands sé fyrst og fremst að vera málsvari þjóðarinnar heima og heiman og halda á lofti merki lands og þjóðar af festu og hógværð. -Við gerum ríka kröfu til forseta um að hann nái að sameina þjóðina, forseti á að stuðla að sátt í samfélaginu. Þetta hlutverk er ekki síst mikilvægt nú þegar traust á mörgum stofnunum samfélagsins hefur beðið hnekki, segir Þóra.
-Forsetinn á að leiða saman ólíka hópa og skoðanir og hjálpa þannig til við uppbyggingu samfélagsins með virðingu fyrir jafnrétti, frelsi og mannúð. Virðingarleysi og sundrung mega aldrei festast í sessi á Íslandi. Slík gildi grafa undan því samfélagi sem við öll viljum búa í.
Það þarf samstöðu á Alþingi til að leiða til lykta þau ágreiningsmál sem brenna á þjóðinni. Þótt forsetinn taki ekki afstöðu til pólitískra deilumála á hann ekki að vera áhrifalaus. Forsetinn er eini þjóðkjörni embættismaðurinn og honum ber að fylgjast grannt með samfélagi sínu og vera öryggisventill þegar nauðsyn krefur. Forsetinn verður að tryggja að þjóðin fái undanbragðalaust að hafa lokaorðið í stórum málum sem snerta fullveldi hennar og sjálfstæði. Mikil áskorun felst í því að gegna embætti forseta Íslands. Ég er tilbúinn að axla þá ábyrgð og takast á við þau verk sem forseti verður að sinna. Að vandlega íhuguðu máli hef ég tekið þá ákvörðun að gefa kost á mér til embættis forseta Íslands.