Þórarinn sigurvegari KS Deildarinnar 2016

Sigurvegari KS Deildarinnar 2016 er Þórarinn Eymundsson. Í öðru sæti varð Mette Mannseth og Ísólfur Líndal í því þriðja. Lið Hrímnis sigraði liðakeppnina 2016, eftir frábæra frammistöðu í vetur, eins og segir á fésbókarsíðu deildarinnar.
Lið Hrímnis er skipað þeim Helgu Unu Björnsdóttur, Líney Maríu Hjálmarsdóttur, Þórarni Eymundsyni og Valdimar Bergstað. Sem fyrr segir sigraði Þórarinn Eymundsson einstaklingskeppnina, í öðru sæti varð Mette Mannseth og Ísólfur Líndal í því þriðja.
Á þessu lokakvöldi keppninnar, sem haldin var í Reiðhöllinni Svaðastöðum í gærkvöldi, sigruðu Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skorri frá Skriðulandi í T2 með einkunnina 8,04. Í skeiði sigruðu Ísólfur Líndal og Korði frá Kanastöðum á frábærum tíma, 4,96.