Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir, Samúel Örn Erlingsson ráðin til starfa

Ráðið hefur verið í þrjár auglýstar stöður frétta- og dagskrárgerðarmanna hjá RÚV á landsbyggðinni. Enn hefur ekki verið ráðið í auglýsta stöðu frétta – og dagskrárgerðarmanns á Austurlandi en stefnt er að því í haust. „Frá og með haustinu verða starfandi frétta - og dagskrárgerðarmenn RÚV í öllum landshlutum. Þetta er í takt við yfirlýsta stefnu RÚV um að auka starfssemi á landsbyggðinni í skrefum,“ segir í fréttatilkynningu.

„Tæplega 80 umsóknir bárust um fjögur störf frétta – og dagskrárgerðarmanna sem auglýst voru á Vesturlandi/Vestfjörðum, Norðurlandi, Suðurlandi og á Austurlandi og greinilegt að margir hæfileikaríkir einstaklingar hafa áhuga á að starfa hjá RÚV,“ segir í fréttatilkynningunni.

Þórgunnur Oddsdóttir hefur verið ráðin í starf dagskrárgerðarmanns á Norðurlandi og mun hún fyrst og fremst vinna að dagskrárgerð fyrir hinn sívinsæla þátt Landans. Þórgunnur hefur áður starfað hjá fréttastofu RÚV. Hún verður með aðsetur á Akureyri.

Halla Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf frétta - og dagskrárgerðarmanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Halla er meðal annars menntuð í kvikmyndagerð og hefur unnið við gerð bæði stuttmynda og heimildarmynda. Halla mun flytja fréttir af Vesturlandi og Vestfjörðum, auk þess að vinna dagskrárefni fyrir útvarp. Halla verður með aðsetur á Ísafirði.

Samúel Örn Erlingsson hefur verið ráðinn í starf frétta – og dagskrárgerðarmanns á Suðurlandi. Samúel Örn hefur áratuga reynslu sem fréttamaður en lengst af starfaði hann sem íþróttafréttamaður hjá RÚV. Undanfarin ár hefur Samúel Örn sinnt kennslu auk þess að vinna sjálfstæða sjónvarpsþætti fyrir RÚV. Samúel Örn mun flytja fréttir af Suðurlandi, auk þess að vinna dagskrárefni fyrir útvarp. Hann verður með aðsetur á Hellu.

„Þessir nýju starfsmenn verða hluti af kraftmiklum starfsmannahópi RÚV um allt land og munu taka virkan þátt í að miðla lífinu í landinu til fólksins í landinu. Enn hefur ekki verið ráðið í auglýsta stöðu frétta – og dagskrárgerðarmanns á Austurlandi en stefnt er að því í haust.

Markmiðið með þessum ráðningum er á meðal annars að auka svæðisbundna umfjöllun í hverjum landshluta fyrir sig, bæði í málum og myndum, á sérmerktum landshlutasíðum á vef RÚV. Auk þess verður áfram lögð áhersla á vandaðan fréttaflutning úr öllum landshlutum í öllum miðlum RÚV,“ segir í fréttatilkynningunni.

Fleiri fréttir