Þorrablót Kvenfélagsins Vöku
Þorrablót Kvenfélagsins Vöku verður haldið í félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 21. janúar nk. Leikfélag Blönduóss sér um glens og grín og hljómsveitin Ulrik sér um undirleik í fjöldasöng og leikur fyrir dansi fram á rauða nótt.
Húsið opnar klukkan 19:30 og borðhald hefst stundvíslega klukkan 20:30. Miðasala fer fram í félagsheimilinu fimmtudaginn 19. janúar frá kl. 17 - 19. Miðaverð er 5.900 kr. og er enginn posi á staðnum. Elli- og örorkulífeyrisþegar, ásamt unglingum fædd árið 1996, greiða 4.900 kr.