Þorralamb í Kárdalstungu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
06.02.2014
kl. 12.13
Í byrjun vikunnar bar ær ein á bænum Kárdalstungu í Húnavatnshreppi lítilli gimbur. Ærin sem er í eigu Halldóru Baldursdóttur mun einhvers staðar hafa komist í návígi við hrút utan hins hefðbundna fengitíma.
"Ég veit ekki hvaða veldur þessu, þetta hefur aldrei gerst áður á þessum bæ, en þessi ær missti lamb í vorið 2013 á sauðburði," sagði Halldóra í stuttu spjalli við Feyki.