Þrettándabrenna Vorboðans
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
04.01.2010
kl. 15.53
Ungmennafélagið Vorboðinn mun standa fyrir Þrettándabrennu á Vorboðavelli þann 6. janúar n.k.
Kveikt verður í brennunni kl. 20:30. og skömmu síðar mun Björgunarfélagið Blanda sjá um flugeldasýningu í boði Vorboðans. Húnvetningar eru hvattir til að mæta og kveðja jólin með tilheyrandi látum.
Fleiri fréttir
-
Mikilvægur sigur Stólanna í Fífunni í dag
Það var ljóst eftir jafntefli á Ólafsfirði um miðja síðustu viku að allir fjórir leikir Tindastóls sem eftir voru í 3. deildinni þetta sumarið yrðu í raun hreinir úrslitaleikir. Staðan á toppi deildarinnar er það jöfn, en fjögur lið berjast um tvö sæti í 2. deild, að það má hvergi út af bregða. Í dag mættu Stólarnir liði Augnabliks í Fífunni og tvö mörk frá Benna á lokakaflanum voru allt sem þurfti til að næla í stigin þrjú. Lokatölur 0-2.Meira -
Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins | Arna Lára Jónsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 23.08.2026 kl. 20.07 oli@feykir.isLægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.Meira -
Lið Tindastóls endurnýjar kynnin við ENBL-deildina
Síðasta vetur tók karlalið Tindastóls þátt í Evrópukeppni í körfubolta. Þátttakan heppnaðist vel, liðið átti marga stórfína leiki í keppninni, það náði góðum árangri og frábær stemning skapaðist í Síkinu sem vakti verðskuldaða athygli út fyrir landsteinana og skilaði körfuknattleiksdtildinni tekjum. Í yfirlýsingu frá stjórn körfuknattleiksdeildar í morgun var sagt frá því að ákveðið hafi verið að endurtaka leikinn og verða Stólarnir því enn á ný þátttakendur í ENBL-deildinni.Meira -
Ferð Einars og Einars afa til Víetnam | Einar Örn Gunnarsson skrifar
Feykir hafði af því spurnir að nafnar nokkrir úr Blönduhlíðinni væru á leið í ævintýraferð og samdi við þann yngri að segja okkur ferðasöguna að ferð lokinni og kemur hún hér:Meira -
Þriðja tap Húnvetninga í röð kom í Garðabænum
Nítjánda umferð 2. deildar karla í knattspyrnu hófst í Garðabænum í gær þar sem botnlið KFG tók á móti liði Kormáks/Hvatar í Miðgarði. Garðbæingar voru í slæmum málum kyrfiilega staðsettir á botni deildarinnar fyrir sléttri viku en 0-5 sigur í síðustu umferð virtist hafa fært þeim byr undir báða og þeir héldu uppteknum hætti þegar Húnvetningar kíktu í heimsókn. Lokatölur 4-0.Meira
