Þriðja sætið þriðja árið í röð

Eins og greint hefur verið frá hér á vefnum átti skotfélagið Markviss á Blönduósi þrjá keppendur á Landsmóti UMFÍ um síðustu helgi. En það var ekki eina mótið sem Markvissmenn kepptu á um helgina, því tveir úr félaginu tóku einnig þátt í alþjóðlegu móti í Hafnarfirði og komu heim með tvenn verðlaun.

Um er að ræða alþjóðlegt mót sem nú var haldið í níunda sinn og kallast SIH open. Þetta árið mættu 32 keppendur til leiks og þar af voru þrír frá Grænlandi, tveir frá Danmörku, tveir frá Englandi og 3 frá Cayman eyjum.

Eftir að skotnir höfðu verið þrír hringir á laugardeginum var keppendum skipt upp í A og B flokk eftir skori. Sextán efstu fóru í A-flokk og sextán neðstu í B- flokk. Þegar tveimur umferðum var lokið á sunnudeginum var Brynjar Guðmundsson efstur í B-flokk á 87 dúfum og Guðmann Jónasson og Guðlaugur SA jafnir í 6.-7. sæti og þurfti að skjóta bráðabana um hvor þeirra færi áfram í úrslitakeppnina. Guðmann hafði betur og var því sjötti maður inn í úrslit.

Brynjar skaut afburða vel í semi-final og keppti að lokum um gullið við Brian Wallbohm frá Grænlandi en Brian hafði betur í lokaumferðinni og varð Brynjar í 2. sæti.

Í A-flokki var keppnin jöfn framan af og Guðmann skaut sig upp í að skjóta um bronsið og var spennan í hámarki á milli hans og Eddison McLEAN frá Cayman eyjum. En þeir enduðu á að skjóta bráðabana um bronsið þar sem að þeir voru jafnir að stigum. En aftur steig Guðmann út á völl í bráðabana og enn og aftur hafði hann betur og landaði þar með 3. sætinu í A-flokk þriðja árið í röð á þessu móti.

Fleiri fréttir