Þriðjungur banaslysa varð á Norðvesturlandi

Við skoðun á umferðarslysum á Norðurlandi vestra á síðasta ári kemur í ljós að þriðjungur allra banaslysa á landinu varð þar en þau urðu alls tólf talsins.  Eitt þeirra varð í þéttbýli, en hin þrjú á þjóðvegum.  Til samanburðar varð eitt banaslys árið 2010 í þessum landshluta.

Hafa ber í huga að þessi fjöldi er þrátt fyrir allt það lítill að varast skal að draga einhverjar ályktanir út frá þessu um versnandi stöðu umferðaröryggis í þessum landshluta. Í því sambandi þarf að meta þróunina til langs tíma á heildarfjölda látinna og alvarlega slasaðra.

Færri slösuðust alvarlega í fyrra heldur en árið á undan eða 8 manns samtals, en voru 10 árið 2010.  Fimm slösuðust alvarlega í akstri á þjóðvegum, en þrír í þéttbýli.  Þar af var einn á Siglufirði og tveir á Sauðárkróki.  Umtalsverð fækkun varð á þeim sem skilgreindir eru lítið slasaðir eða úr 81 árið 2010 í 50 á síðasta ári. 43 slösuðust utanbæjar á svæðinu og 5 innanbæjar á Sauðárkróki.

Alvarlegu slysin urðu með þeim hætti að í tveimur tilvikum var um að ræða árekstur bíls og bifhjóls, einu sinni féll maður af bifhjóli, einn ók útaf, einn lenti í reiðhjólaslysi og um var að ræða árekstur í eitt skiptið.  Átta slösuðust alvarlega á svæðinu.  Eðli umferðar í Húnavatnssýslum og Skagafirði hefur án efa talsverð áhrif á slys og slysahættu.  Þar er mikil umferð gegnum sýslurnar milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins og margir ökumenn sem þekkja aðstæður ekki vel.

Umferðarstofa vekur athygli á slysakorti sem er á vefnum www.us.is og á forsíðunni er borði sem á stendur Slysakort.  Þar geta allir skoða slysastaði í sínu nærumhverfi.

/Umferðastofa

Fleiri fréttir