Þriggja ára áætlun Skagastrandar samþykkt

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í gær var tekin fyrir tillaga að þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og stofnana fyrir árin 2012 – 2014. Í áætluninni er gert ráð fyrir hægum vexti tekna og gjalda út áætlunartímann.

Í áætluðum ársreikningi fyrir umrædd ár er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu. Ekki er gert ráð fyrir skuldaaukningu á tímabilinu en árlegar fjárfestingar eru áætlaðar um 40 milljónir.

Áætlunin var samþykkt á fundinum en hægt er að nálgast hana HÉR

Fleiri fréttir