Þrjú verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrk til atvinnumála kvenna
Í lok síðustu viku úthlutaði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra styrkjum til atvinnumála kvenna í tuttugasta skiptið frá árinu 1991. Fjörtíu og tvö fjölbreytt verkefni hlutu náð fyrir augum nefndarinnar sem í allt fengu 30 milljónir króna.
Í ár bárust 338 umsóknir hvaðanæva af landinu og hafa aldrei verið fleiri. Þrjú verkefni af Norðurlandi vestra fengu úthlutað styrkjum, tvö úr Húnaþingi vestra og eitt í Skagafirði og eru eftirfarandi:
Stella Jórunn A. Levy Jörfi 531 Hvammstangi Sæluostar úr sveitinni 350.000 - Markaðssetning
Birgit Kositzke Hlíðarvegi 14 530 Hvammstangi - Gerð viðskiptaáætlunar-Kanínubú 400.000 Gerð viðskiptaáætlunar
Anna Jóhannesdóttir Hjaltastöðum 560 Varmahlíð - Vöruþróun og markaðssetning á íslensku
tilapiuleðri 1.000.000