Þrjú verkefni keppa um Eyrarrósina

Þau þrjú framúrskarandi verkefni sem keppa um Eyrarrósina í ár eru Frystiklefinn, Listasafn Árnesinga og Sköpunarmiðstöðin Stöðvarfirði. Hvert þeirra hlýtur flugmiða frá Flugfélagi Íslands og peningaverðlaun. Nes listamiðstöð var meðal tíu verkefna sem tilnefnd höfðu verið.

Það kemur síðan í ljós við hátíðlega athöfn á Ísafirði þann 4.apríl hvert þeirra stendur uppi sem Eyrarrósarhafi 2015 og fær í verðlaun 1.650.000.- kr. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin á Ísafirði.

Fleiri fréttir