Þróun framlaga til menningar-, lista-, íþrótta- og æskulýðsmála

Virðisaukaskattur á bækur verður afnuminn í byrjun árs 2019. Mynd: PF.
Virðisaukaskattur á bækur verður afnuminn í byrjun árs 2019. Mynd: PF.

Heildarframlög til málefnasviðs menningar-, lista-, íþrótta- og æskulýðsmála jukust um 1,5 milljarða króna að raunvirði milli áranna 2017 og  2018, eða um 12%. Ríkisfjármálaáætlun 2019-2023 gerir ráð fyrir að útgjaldasvigrúm málefnasviðsins muni halda í því horfi út tímabilið. 

Virðisaukaskattur á bækur verður afnuminn í byrjun árs 2019. Ekki liggur fyrir hversu mikil tekjuminnkun ríkissjóðs verður vegna niðurfellingu skattsins og margar breytur geta haft áhrif á þær fjárhæðir.
Samkvæmt tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu standa vonir til að aðgerð þessi hafi jákvæða keðjuverkun í för með sér fyrir bæði íslenska útgáfu og aðra menningarneyslu. 

Grafið sýnir áætlað umfang málefnasviðs menningar-, lista-, íþrótta- og æskulýðsmála 2017-2023, í milljónum kr. á verðlagi 2018 samkv. fjárlögum og ríkisfjármálaáætlun.

Meðfylgjandi graf sýnir áætlað umfang málefnasviðs menningar-, lista-, íþrótta- og æskulýðsmála 2017-2023, í milljónum kr. á verðlagi 2018 samkv. fjárlögum og ríkisfjármálaáætlun. Undanskilin eru tímabundin framlög vegna máltækniáætlunar og tekið er tillit til niðurfellingar virðisaukaskatts á bókum.

Tímabundin framlög vegna máltækniáætlunar koma inn á málefnasviðið í ríkisfjármálaáætlun en ráðgert er að því verkefni ljúki við lok tímabilsins. Auknar fjárheimildir eru áætlaðar í Afrekssjóð ÍSÍ á tímabilinu, sem og í Kvikmyndasjóð og til reksturs safna í ríkiseigu.

Í undirbúningi er einnig gerð hagvísa fyrir málefnasvið menningar-, æskulýðs og íþróttamála. Markmiðið með þeirri vinnu er að kortleggja betur hagræn áhrif þeirra málaflokka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir