Þróunarfjárframlag til hrossaræktar
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarfjárframlagi til hrossaræktar en markmið styrkveitinganna er að efla þróun og ræktun íslenska hestsins og fylgja þannig eftir árangri þeim er náðst hefur í aukinni fagmennsku í hrossarækt og þjálfun íslenska hestsins.
Styrkhæf eru hverskonar verkefni er lúta að kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð, tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi og kynningar- og nýsköpunarstarfi.
Lögð er megin áhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunarverkefni sem geta orðið sjálfbær eftir að þróunartímabili þeirra lýkur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rannsóknir. Samkvæmt fjárlögum ársins 2011 hefur sjóðurinn til ráðstöfunar 6 milljónir króna og er umsóknarfrestur til 15. febrúar nk.
Sjá nánar HÉR