Þungar áhyggjur af áhrifum verkfallsins

Fagráð um velferð dýra hefur lýst yfir þungum áhyggjum vegna áhrifa yfirstandandi verkfalls dýralækna og hvetur Matvælastofnun til þess að hafa náið eftirlit með velferð eldisdýra á meðan á verkfalli stendur. Þetta kemur fram í ályktun frá Fagráði um velferð dýra en ráðið fundaði sl. þriðjudag.

Í ályktuninni segri að í þeim tilvikum sem ljóst er að þéttleiki sláturdýra er yfir leyfilegum mörkum þurfi að bregðast við strax með slátrun. Ráðið taki þó ekki afstöðu til þess hvort afurðir séu geymdar eða settar á markað.

Ennfremur segir að við þær afar erfiðu aðstæður sem verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun veldur hefur stofnunin reynt að tryggja svo sem kostur er að dýr þurfi sem minnst að líða. Í því skyni hefur stofnunin sent fjölmargar beiðnir til undanþágunefndar, leyfi til að kalla starfsfólk stofnunarinnar út til að sinna eftirliti á sláturhúsu, kanna ástand á búum og bregðast við ábendingum um brýn mál er varða dýravelferð.

Undanþágur hafa verið veittar í mörgum tilvikum en þar til í morgun hafa engar undanþágur verið samþykktar vegna slátrunar á svínum. Matvælastofnun hefur áhyggjur af ástandi mála, sér í lagi á svínabúum, og mun halda áfram að sækja um undanþágu frá verkfalli fyrir starfsfólk stofnunarinnar til fylgjast með dýravelferð,“ segir loks í ályktuninni sem Fagráð sendi frá sér í gær.

Fleiri fréttir