Þuríður Harpa - Hver dagur er öðrum líkur …og þó

Hver dagur er öðrum líkur, þannig að ég ákvað að taka tvo daga saman í bloggið. Ég hef undanfarna 2 daga verið að taka inn afar skrautleg pilluhylki sem eru fagurbleik og blágræn á lit. Þeim er ætlað að koma á mig lagi þannig að ég geti farið í þessa blessaða lumbarsprautu sem ég tuða endalaust um hérna. Þessar skrauttöflur hafa hinsvegar gert það að verkum að ég er með hálfgerða ógleði og algjörlega uppgefin í skrokknum, sem sagt hef ekki gert nein stórkostleg kraftaverk enn. Auk þessa hefur lamaði hlutinn verið undirlagður í miklum taugabruna og mér finnst ég alltaf vera stíf í öllum vöðvum, en þegar ég tékka þá er ég náttúrlega bara drulluslök. Þetta er greinilega eitthvað taugarugl. Annars er dagurinn í dag sá fyrsti sem okkur hefur fundist heitur, þ.e. loftið er hlýtt hvort sem er í skugga eða sól, við njótum þess auðvitað að sitja úti á láta sólina skína á bleika skankana meðan indversku konurnar dúða sig og passa að sólin nái ekki að brúna þær meira en orðið er. Við fórum í skoðunarferð í dag að skoða Qudar Minar – sem er samansafn af eldgömlum moskum og svo þetta fræga sólúr – margra metra hár turn. Í fyrsta sinn síðan ég fór að venja komur mínar hingað sá ég heilu rúturnar af evrópubúum, eldra fólki í skoðunarferð. Líklega er þetta bestu tíminn fyrir fólk að koma hingað, meðan hitastigið er enn þolanlegt, ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að mér finnist allt best á Íslandi þá vildi ég að sumarið væri hlýrra og lengra. Það vekur furðu okkar hvað lítið er gert út á túrismann hérna, þrátt fyrir ótrúlegan fjölda ferðafólks á þessum stað var hvergi hægt að setjast niður og fá sér kaffibolla eða te. Ekki er verið að troða inn á mann neinum minjagripum þarna heldur, skrýtið þetta Indland það virðist ekki lúta neinum lögmálum. Ég átti spjall við Shivanni í morgun sem er sjúkraþjálfarinn minn hér, ég var að forvitnast um hvort hún gæti valið sér mann sjálf eða hvort henni yrði ráðstafað. Hún sagðist enn ekki hafa fundið sér mann sjálf en er orðin 24 ára þannig að foreldrar hennar eru farnir að leita að manni. Hún sagðist því gera ráð fyrir að verða ráðstafað. Hún hinsvegar getur neitað að giftast þeim sem henni er ætlað ef henni líkar ekki við hann, eins ef stjörnukort þeirra sýna að þau passa ekki saman, þá er þar fullkomin ástæða til að hætta við. Hún kveið ekkert því að giftast einhverjum sem henni bara líkaði við, aftur á móti kveið hana fyrir að þurfa að flytja úr foreldrahúsum og kannski þurfa að flytja út fyrir Delhí burt frá fólkinu sínu. Hún er alin upp á stóru heimili þar sem afi hennar og amma búa ásamt foreldrum hennar og svo föðurbróðir hennar og fjölskyldu hans. Fyrir mér er þetta fyrirkomulag framandi og næsta óskiljanlegt en þetta gengur upp hér eins og svo margt annað. Hún sagði þó að mannsefnið hennar yrði að vera vel menntaður, auðvitað þarf hann að vera af sömu þjóðfélagsstigum, allavega ekki af lægri klassa. Hér er stjörnuspekingur fengin til að gera stjörnukort flestra barna þegar þau fæðast og er það venja að prestur afhendir hring með þeim steini sem stjörnuspekingurinn hefur lesið út að hæfi viðkomandi. Reyndar fékk Shivanni fyrst perluhring þegar hún var lítil og alvörusteininn fékk hún þegar hún var orðin unglingur. Þau trúa eins og margir íslendingar að orka fylgi steinunum og Shivanni sagðist meðtaka orkuna frá hennar steini. Á morgun vona ég að ég fái að fara í þessa sprautu og ljúka henni af ég hef þá helgina til að jafna mig og verð þá kannski bara með sprækasta móti síðustu vikuna.

Fleiri fréttir