Tilboð í framkvæmdir lesin upp í dag

Þau tilboð sem hafa borist í framkvæmdir á lóð Kvennaskólans á Blönduósi verða lesin upp á bæjarskrifstofunni á Blönduósi  kl. 13 í dag, mánudaginn 7. maí, að viðstöddum þeim sem þess óska. Stoð verkfræðistofa hefur umsjón með verkinu, fyrir hönd Byggðasamlags um atvinnu og menningarmál í A-Húnavatnssýslu, og auglýsti eftir tilboðum í jarðvegsskipti á lóð Kvennaskólans í síðustu viku.

Auglýsingin var birt á heimasíðu Blönduósbæjar en þar komu fram helstu magntölur, sem eru:

  • 1.1.        Gröftur á burðarhæfu efni, endurnýtt í fyllingu           750 mᶟ
  • 1.2.        Gröftur á óburðarhæfu efni, flutt á losunarstað          1.325 mᶟ
  • 1.3.        Fylling með burðarhæfu efni úr námu                         590 mᶟ

 

Fleiri fréttir