Tilkynning um framboð til prófkjörs Sjálfstæðisflokks
Ég, Aðalsteinn Orri Arason tilkynni hér með framboð mitt til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og mun sækjast eftir 4. sæti listans.
Ég er 25 ára gamall, frá Varmahlíð í Skagafirði. Stúdent og húsasmiður frá Fjölbrautaskóla Norðlands vestra, búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands og starfa sem landbúnaðar- og byggingaverktaki.
Ég hef brennandi áhuga á stjórnmálum og málefnum líðandi stundar.
Mín markmið eru skýr:
Huga þarf að jaðarsvæðum þar sem byggð stendur höllum fæti. Bættar samgöngur, öflugar tengingar og dreifikerfi. Grunnþjónusta s.s. menntun og heilbrigðisþjónusta þarf að vera góð. Jöfn tækifæri allra til náms, starfa og athafna.
Stöðuleiki atvinnulífs í kjördæminu. Frelsi fólks til nýsköpunnar. Nýting lands og sjávar samhliða verndun. Skapandi greinar að ógleymdum vaxandi tækifærum í ferðaþjónustu. Svona mætti lengi telja. Ég vona að ég hitti sem flesta og fái að heyra mismunandi sjónarmið sem brenna á fólki svo farsæla niðurstöðu sé hægt að fá í sem flestum málum.
Aðalsteinn Orri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.