Tillögum stjórnvalda um fjármálastefnu og fjármálaáætlun fagnað af stjórn SSNV
Fjárlaganefnd Alþingis óskaði eftir umsögn um tillögur til þingsályktana um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 og fjármálastefnu fyrir 2017-2021 en þær voru lagðar fram á alþingi í apríl síðastliðnum. Stjórn SSNV hefur nú skilað af sér umsögn en þar fagnar stjórnin tillögunum.
Samkvæmt tillögunum ber stjórnvöldum að fylgja fjármálaáætlun um opinber fjármál fyrir árin 2017-2021 en áætlunin er byggð á fyrirliggjandi fjármálastefnu fyrir sama tímabil og þeim skilyrðum sem þar er að finna.
Fram kemur í umsögn stjórnar SSNV að það sé löngu orðið tímabært að horft sé til lengri tíma en eins árs í senn hvað varðar áætlanir ríkissjóðs, bæði útgjalda og tekjuhlið. Slíkt sé þekkt hjá sveitafélögum. „Hér er fyrsta skrefið stigið í þeirri viðleitni að áætlanir stjórnvalda þegar kemur að fjármálum verði fyrirsjánalegri og að ríkisstjórnir á hverjum tíma gefi strax í upphafi valdatíðar sinnar tóninn um það hvert þær vilja stefna með fjármál ríkisins sbr. lög nr. 123/2015 um opinber fjármál,” segir ennfremur í umsögninni.
Hægt er að lesa umsögnina í heild sinni á vef SSNV.