Tilnefningar til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla verða veitt þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. Óskað er eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna frá einstaklingum, félögum og hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila og skóla sem og öflugu samstarfi innan nærsamfélagsins.

Vert er að nefna að verkefnin mega vera á öllum skólastigum; leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Allir eru hvattir til að láta málið til sín taka og tilnefna verðug verkefni í sínu umhverfi. Sérstakt tilnefningarblað er að finna á heimasíðu Heimilis og skóla www.heimiliogskoli.is.

Þar er einnig að finna leiðbeiningar og nánari upplýsingar og skulu tilnefningar sendar á rafrænan hátt með því að fylla út þar til gert eyðublað. Síðasti skiladagur tilnefninga er 28. apríl 2011.

Fleiri fréttir