Tilraunaeldi með bleikju á Blönduósi
Fyrirtækið Skel og fiskur ehf. á Blönduósi hefur óskað eftir því við skipulags-, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar að fá að leigja land og vatn sem er í eigu bæjarins. Landið er við Dýhól og skiptist í tvö svæði sem afmarkast með skurðum. Skel og Fiskur ehf. er í samstarfi við Hólaskóla um rannsóknir og mælingar á aðstæðum til bleikjueldis og kemur skólinn að rannsóknum á þessu svæði verði leyfi gefið að hálfu Blönduósbæjar.
Um tilraunareldi yrði að ræða til eins árs sem gefur frekari upplýsingar um möguleika á svæðinu. Nefndin tekur jákvætt í erindið en hefur óskað frekari upplýsinga um málið.
Skel og fiskur ehf. var stofnað á þessu ári til að efla atvinnu og rannsóknarstarfsemi í Austur-Húnavatnssýslu. Á heimasíðu félagsins segir að Blönduós hafi alla möguleika til atvinnu og rannsókna eins og önnur bæjarfélög. Það sé markmið fyrirtækisins að finna þessi tækifæri og virkja þau. Fyrsta verkefnið sem fyrirtækið hefur hrint í framkvæmd er kræklingarækt og hafa verið settar niður í sjó 22 tilraunalínur.
/Húni.is
